Börn hlaupa fyrir börn
Um 4.200 börn tóku þátt í hlaupinu í fyrra. mbl.is/Jim Smart
Fram kemur í tilkynningu frá Glitni að um 4.200 börn hafi tekið þátt í hlaupinu í fyrra og vonir standi til að a.m.k. jafnmargir hlaupi í ár. Þátttökugjaldið í ár er það sama og í fyrra eða 800 kr. og ef þátttakan í ár verður jafngóð eða betri munu milljónir króna renna til UNICEF að hlaupi loknu.
„Við höfum kosið að kalla þetta „Börn hlaupa fyrir börn“ því það eru einmitt börnin og forráðamenn þeirra sem styrkja UNICEF – Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna með því að skrá sig í þetta skemmtilega hlaup. Að þessu sinni verður Latabæjarhlaupið á svæðinu fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands og ég býst við þúsundum manna á svæðið þannig að það verður líf í tuskunum,“ segir Birna Einarsdóttir, framkvæmdarstjóri Glitnis á Íslandi, í tilkynningu.. „Hlaupið verður í anda Íþróttaálfsins og er ekki að efa að mörg börn munu vilja nýta það tækifæri og hjálpa um leið bágstöddum börnum víða um heim.“
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir að öllu söfnunarfénu verði varið í alþjóðlegan sjóð UNICEF sem nýtir fjármunina þar sem þörfin er mest hverju sinni. Hann segir alla hjá UNICEF á Íslandi vera afskaplega þakkláta fyrir þennan mikilvæga stuðning.
Skráning í Latabæjarhlaupið fer fram á heimasíðu Glitnis www.glitnir.is. Afhending á bol hlaupsins og öðrum skráningargögnum fer fram í Laugardalshöll föstudaginn 17. ágúst frá kl. 12-21.
Hlaupið hefst kl. 14 og er því skipt í fjóra aldurshópa og gert er ráð fyrir að börn 6 ára og yngri hafi með sér einn fylgdarmann. Systkini geta hlaupið saman en þá verða þau eldri að hlaupa í flokki þeirra yngri. Öllum þeim sem eru með kerrur og vagna meðferðis er ætlað að fara aftast með síðasta hópnum.
Innlent »
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 16. ágúst 2008, Innlent Stuðningur íslenskra barna kærkominn
- Miðvikudagur, 8. nóvember 2006, Innlent Fimm fyrirtæki gera styrktarsamning við UNICEF
- Mánudagur, 20. ágúst 2007, Innlent Bestu bolir í heimi
- Þriðjudagur, 11. júlí 2006, Innlent Framkvæmdastjóri UNICEF á leið til landsins
- Föstudagur, 4. júlí 2008, Innlent Þrjár milljónir söfnuðust vegna Búrma
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































