Stórhýsi mótmælt
Fyrirhuguð bygging við Strandgötu í Hafnarfirði
gunnhildur@mbl.is
Fyrirhugað er að reisa níu hæða byggingu við Strandgötu í Hafnarfirði sem hýsa á verslanir, skrifstofur og íbúðir. Innangengt verður milli nýja hússins og verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar.
Ekki eru allir á eitt sáttir um framkvæmdina og óttast sumir bæjarbúa að hún varpi skugga á byggðina í kring og að vindstrengir myndist út frá henni. Kynningarfundur verður haldinn í Hafnarborg á morgun, á milli kl. 17 og 19, en bæjarbúar hafa frest til 22. ágúst til þess að gera athugasemdir við bygginguna.
Valur Ásmundsson stendur ásamt fleiri Hafnfirðingum fyrir undirskriftasöfnun gegn byggingu nýja hússins. "Þetta verður hryllilegt slys ef af þessu verður," segir hann.
Valur segir ennfremur að nýja byggingin muni byrgja fyrir sólarljós inn í miðbæinn, sérstaklega á vorin þegar sól er lágt á lofti. Hann hefur jafnframt áhyggjur af því að bilið milli turnanna tveggja beini sterkum vindum inn í miðbæinn. "Sérstaklega í vestan- eða suðvestanátt, þá verður alltaf rok á Strandgötunni þar sem áður var alltaf logn," sagði Valur.
Skuggamyndun minni en áður
Sigrún Þorgrímsdóttir er framkvæmdastjóri Hanzahópsins, sem stendur fyrir nýbyggingunni. Hún segir að byggingin kasti ekki meiri skugga en þær sem voru þar fyrir."Það var upprunalega gert ráð fyrir tólf hæða húsi en í kjölfarið á skuggakönnun var það lækkað niður í níu. Þá er skuggamyndunin innan þess sem var áður."
Hún segir einnig ástæðulaust að hafa áhyggjur af vindstrengjum á Strandgötunni og að straumar vinda við húsið verði teknir með í reikninginn við hönnun þess. Hægt sé að stýra þeim að einhverju leyti með vindskeiðum.
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.
Innlent »
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 17. september 2006, Innlent Immobilia undirbýr byggingu níu hæða skrifstofuhúsnæðis við Ármúla
- Sunnudagur, 10. september 2006, Innlent Tónlistar- og ráðstefnuhúsið kynnt í sérstökum Íslandsskála á tvíæringi um byggingarlist í Feneyjum
- Föstudagur, 20. júlí 2007, Innlent Tekist á um turna í miðbænum
- Föstudagur, 17. ágúst 2007, Innlent Stórhýsi kynnt í Hafnarfirði
- Sunnudagur, 1. október 2006, Innlent Loftíbúðir við Mýrargötu
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































