Útkall hjá Landhelgisgæslunni í nótt

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í nótt.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í nótt. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti mikið slasaða konu að Hellnum á Snæfellsnesi um klukkan tvö í nótt. Konan hafði lent í bílveltu og var töluvert slösuð. Útkallið kom klukkan 1.30 og þyrlan fór í loftið rúmlega hálftíma síðar og lenti með konuna á Borgarspítalanum í Reykjavík um klukkan 3.30. Ekki er vitað nánar um líðan konunnar að svo stöddu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert