Danskir dagar í Stykkishólmi í góðum gír

Hverfagrill í gærkvöldi. Íbúar við Sundabakka skemmta sér.
Hverfagrill í gærkvöldi. Íbúar við Sundabakka skemmta sér. mbl.is/Gunnlaugur Árnason

Danskir dagar í Stykkishólmi eru haldnir um þessa helgi, samkvæmt venju. Þá rifja bæjarbúar upp dönskukunnáttu sína og tengslin við Danmörku.

Mikill fjöldi ferðamanna er í bænum í blíðskaparveðri.

Hátíðin hófst í gærkvöldi með hverfagrilli. Hvert hverfi var sinn samkomustað, þar sem íbúanir hittust, borðuðu saman og skemmtu sér. Í góða veðrinu í gærkvöldi safnaðist fólkið saman í miðbænum.

Að sögn lögreglu var kvöldið og nóttin tiltölulega róleg. Öflug löggæsla er í bænum á meðan á hátíðinni stendur. Í nótt voru 11 lögregluþjónar á vakt sem komu m.a. frá Akranesi og Borgarnesi.

Í dag verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá t.d. leiktæki í Tívólí, Dýrin í Hálsaskógi, Akstjórn Lionsmann. Í kvöld verður bryggjuball, flugeldasýning og veitingarstaðir opnir. Á morgun verður messað á dönsku í gömlu kirkjunni. Miðað við hve veðrið leikur við bæjarbúa og gesti verður gaman að vera í Hólminum þessa helgi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert