Segja nýliðinn júlí besta grillmánuð Íslandssögunnar

Íslendingar hafa verið duglegir að grilla í sumar.
Íslendingar hafa verið duglegir að grilla í sumar.

Landssamband kúabænda segir, að nýliðinn júlímánuður hafi líklega verið einn besti grillmánuður frá því að sögur hófust. Beri sölutölur á kjöti þess skýrt vitni, en kjötsala var 15,7% meiri í júlí í ár en í sama mánuði í fyrra. Þá selst nú í fyrsta skipti meira af alifuglakjöti en af lambakjöti.

Kúabændur segja, að alls hafi selst 7198 tonn af alifuglakjöti undanfarna 12 mánuði en 7160 tonn af lambakjöti. Þetta séu tíðindi því undanfarin þúsund ár eða svo hafi lambakjöt verið sú kjöttegund, sem mest er neytt af hér á landi.

Framleiðsla á nautakjöti undanfarna 12 mánuði var 3425 tonn og hefur aukist um 6,7% frá því á sama tímabili fyrir ári. Segir á heimasíðu Landssambands kúabænda, að allt nautakjöt seljist jafnharðan og birgðasöfnun sé sama og engin. Innflutningur á nautakjöti var 157 tonn fyrstu 6 mánuði þessa árs. Á sama tímabili í fyrra var innflutningurinn var 247 tonn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert