Yfirlýsing frá flugstjóranum
- Töluvert margar ásakanir birtust gegn mér í Morgunblaðinu 20-08-07. Vegið er að starfi mínu ásamt ásökunum um nauðgun og líkamsmeiðingar. Smygl á fólki er síðan alveg sér á báti.
Sara eins og hún er nefnd kom flugleiðis ásamt mér til Keflavíkur sumarið 2006 eftir flug hennar frá Venesúela til Bandaríkjanna nokkrum dögum áður. Það að umrædd vél hafi verið í fraktflugi er aukaatriði. Við tollskoðun tilkynni ég um 3 farþega og þar af 1 frá Venesúela og 2 Íslendinga. Atburðarásin var því engan veginn eins og skýrt var frá. Enginn starfsmannaútgangur er til fyrir áhafnir eins og kemur fram í Morgunblaðinu. Farið er sömu leið og aðrir farþegar. Tollari á vakt tilkynnti til yfirmanna um farþega, spyr konuna um gilt vegabréf og hleypir henni síðan inn í landið.
Rétt er að hún hefur kært mig fyrir líkamsárás en það mál er ennþá í gangi. Mín skoðun er sú að hún hafi beitt kæru til að dvelja í landinu og hið sanna sé endanlega að koma í ljós nú. Því er alfarið hafnað að um einhverja líkamsárás hafi verið að ræða. Þá er ásökun um að þröngva henni til líkamlegs samræðis algjörlega ósönn og er af sama meiði og ásökunin um líkamsárás. Hið rétta er að hún stofnaði til áfloga þegar ég krafðist þess á sínum tíma að hún yfirgæfi heimili mitt. Rétt að taka fram að hún er stór og kröftug kona.
Morgunblaðið ákvað að birta þessa einhliða fréttamennsku án þess að bera hana undir mig til staðfestingar. Það er á ábyrgð blaðsins. Ég mun að öðru leyti ekki fjalla nánar um umfjöllun blaðsins um sambúðarmál og einkalíf mitt. Ég áskil mér hins vegar allan rétt til þess að krefja blaðið um skaðabætur fyrir árás á einkalíf mitt, ærumeiðandi umfjöllun, ásakanir um refsiverða háttsemi og skerðingu á starfsheiðri mínum sem flugstjóra. Ég kýs að nafn mitt verði að svo stöddu ekki birt enda sá Morgunblaðið ekki ástæðu til þess að birta rétt nafn viðmælanda síns.
Virðingarfyllst.





































