Tveir sinna um 500 manns
mbl.is/Ómar Óskarsson
fridrik@mbl.is
Á fimmta hundrað einstaklinga er í umsjón Fangelsismálastofnunar að einhverju leyti. Um 250 manns eru á reynslulausn, skilorði eða ákærufrestun, helmingi færri eru í fangelsi og um 100 einstaklingar taka út refsingu í formi samfélagsþjónustu. Aðeins tveir sálfræðingar annast hópinn, en starfskraftar þeirra fara að langmestu leyti í einstaklingsþjónustu við þá sem eru innan veggja fangelsanna hverju sinni.
"Við þyrftum að minnsta kosti einn sálfræðing til viðbótar inn í fangelsin, helst tvo, og þá er ég bara að miða við stöðuna eins og hún er í dag þar sem fjölgun hefur bæði verið á föngum og þeim sem nýta sér þjónustu okkar," segir Anna Kristín Newton, réttarsálfræðingur og starfsmaður Fangelsismálastofnunar.
Vantar peninga – ekki viljann
Í stöðunni sé ekki mögulegt að bjóða upp á hópmeðferð. "Við verðum að sinna þeim sem á þurfa að halda núna og við þörfnumst einfaldlega aukinnar aðstoðar til þess að geta hafið hópmeðferðirnar. Við byrjuðum til dæmis með reiðistjórnunarnámskeið sem við unnum nánast allt í aukavinnu og við bara getum það ekki, þetta er of þungur hópur til þess," segir Anna.Hún segir fjárveitingar til stofnunarinnar standa í vegi fyrir því að mögulegt sé að ráða fleiri sálfræðinga til starfa, ekki skorti á viljann til þess að fjölga slíku fagfólki. "Það hefur margt breyst síðan ég byrjaði hérna fyrir sjö árum. Hópurinn sem kemur inn í dag er dálítið öðru vísi en verið hefur. Hann er fúsari til að óska eftir hjálp og margir eru kannski verr staddir en áður, hafa lengri neyslusögu og annað slíkt. Við verðum til að mynda vör við að einstaklingum með geðræn vandkvæði, á borð við ofvirkni og athyglisbrest, hefur fjölgað."
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.
Innlent »
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 23. febrúar 2007, Innlent Dómstólar geti dæmt til samfélagsþjónustu
- Þriðjudagur, 23. janúar 2007, Innlent Gerðu ekki mistök með að leyfa afplánun á Vernd
- Miðvikudagur, 27. júní 2007, Innlent Öryggismiðstöðin hefur eftirlit með samfélagsþjónustu
- Sunnudagur, 21. september 2008, Innlent Tveir fyrstu til Litháen í vikunni
- Föstudagur, 1. febrúar 2008, Innlent Fangar verða ekki seldir út til vinnu
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































