Varað við óprútnum skartgripaþjófum

Varað er við óprútnum þjófum sem herja á skartgripasala.
Varað er við óprútnum þjófum sem herja á skartgripasala. mbl.is/Guðmundur Rúnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar starfsmenn skartgripaverslana við óprúttnum aðilum sem hafa þegar stolið skartgripum úr einni verslun í Reykjavík og gert tilraun til þjófnaðar í annarri verslun í borginni. Varað er við karli og konu af austur-evrópskum uppruna en þau eru bæði dökk yfirlitum. Með þeim í för er stundum ung stúlka, 4-5 ára. Talið er að konan sé um þrítugt en maðurinn nokkru eldri en hann er mjög vel til fara.

Maðurinn beitir þeirri aðferð að fanga athygli starfsmanna verslana með því að draga upp seðlabúnt og lætur sem hann ætli að kaupa tiltekinn hlut. Á meðan virðist sem konan eða barnið steli skartgripum þegar ekki sést til þeirra.

Einnig er varað við fólki sem býður gull til sölu en málin tvö eru talin tengjast og jafnvel að sömu aðilar eigi þar hlut að máli. Grunur leikur á að fólkið sé á gráleitri BMW-bifreið með erlendu skráning

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert