422 ökumenn fá sekt fyrir að aka of hratt á Hringbraut

422 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að virða ekki 60 km leyfilegan hámarkshraða á Hringbraut í Reykjavík í gær og fyrradag. Umrædd vöktun hófst klukkan 15:15 á miðvikudag og lauk klukkan 9:50 á fimmtudag og stóð því yfir í u.þ.b. 19 klukkustundir.

Lögreglan segir, að brot ökumannanna hafi náðst á löggæslumyndavél en hinir brotlegu óku að jafnaði á liðlega 75 km hraða. Sjötíu og fimm ökumenn voru mældir á yfir 80 og fjórtán á yfir 90. Fjórir óku á yfir 100 km/klst en sá sem hraðast ók var á 131 km hraða.

Fyrrnefnd myndavél er á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vestur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert