Heildarmagn karfa í úthafinu talið vera ríflega 1,2 milljón tonn
Árni Friðriksson. mbl.is/Þorkell
Alþjóðlegi karfaleiðangurinn er farinn annað hvert ár í Grænlandshafi og aðliggjandi hafsvæðum og er tilgangur hans að meta stofnstærðir karfa í úthafinu. Í ár tóku auk Íslendinga Rússar þátt í þessum leiðangri. Upphaflega stóð til að Þjóðverjar sendu skip í leiðangurinn en vegna bilunar urðu þeir að hætta við þátttöku. Aðstæður til mælinga voru góðar, t.d. var veður yfirleitt gott og engar hindranir voru vegna íss, segir á vef Hafrannsóknarstofnunar.
Úthafskarfinn, sem mældur var með bergmálsaðferð, fannst allt vestur að lögsögu Kanada og talið er að náðst hafi að mestu að fara yfir útbreiðslusvæði hans. Alls mældust rúm 372 þúsund tonn af karfa með bergmálsaðferð og er þetta um þriðjungs minnkun miðað við árið 2005 og lægsta mæling sem fengist hefur ef frá er talin mælingin árið 2003, en sú mæling þótti ekki marktæk vegna tímasetningar leiðangursins. Meginþorri þess magns sem mældist var, líkt og árið 2005, á svæðinu sunnan og suðvestan við Hvarf á Grænlandi.
Þar sem því var við komið var magn karfa mælt en þar sem karfi heldur sig dýpra en hægt er að mæla með bergmálsmælum var magnið metið með togtilraunum. Samsvarandi mælingar hafa verið gerðar frá árinu 1999. Mat á magni karfa á dýptarsviðinu 350-950 metrum, byggt á þeirri aðferð, var áætlað um 854 þúsund tonn sem er tæp 200 þúsund tonnum meira og mældist árið 2005. Því er talið að heildarmagn karfa í úthafinu, á svæðinu frá lögsögu Kanada og að Íslandi, sé ríflega 1.2 milljón tonn, sem er svipað magn á mældist árið 2005. Mest fékkst af karfa í dýpri lögum sjávar á norðausturhluta rannsóknasvæðisins.
Í leiðangrinum fékkst talsvert af karfa á lengdarbilinu 28-33 cm í bæði efri og neðri lögum sjávar, sem gefur til kynna að nokkur nýliðun eigi sér stað.
Sjávarhiti í leiðangrinum mældist nokkru hærri nú en á fyrri hluta síðasta áratugar, sem er svipað og hann hefur verið það sem af er þessari öld.
Sameiginleg skýrsla þeirra sem þátt tóku í leiðangrinum liggur nú fyrir og verður höfð til hliðsjónar þegar Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf um veiðar úr karfastofnum í lok október. Skýrsluna má nálgast á vef ICES (http://www.ices.dk/reports/RMC/2007/SGRS/sgrs07-2.pdf).
Leiðangursstjóri var Kristján Kristinsson. Skipstjóri var Kristján Finnsson.





































