36 mínútur á dag í ferðir til og frá vinnu

Félagsmenn VR eru að meðaltali 36 mínútur í og úr …
Félagsmenn VR eru að meðaltali 36 mínútur í og úr vinnu á dag. mbl.is/Ómar

Félagsmenn VR eyða að jafnaði 36 mínútum á dag í ferðir til og frá vinnu ef þeir stoppa hvergi á leiðinni. Þetta jafngildir 133 klukkustundum á ári, að teknu tilliti til sumarfrís, helga og frídaga.

Þeir sem stoppa á leiðinni í eða úr vinnu, svo sem til að fara með börn í leikskóla eða koma við í búð á leiðinni heim, verja 58 mínútum á hverjum degi í það að koma sér í og úr vinnu. Félagsmenn mæta að jafnaði klukkan 8:30 í vinnuna og eru á vinnustaðnum í rétt tæpar 9 klukkustundir.

Þetta má lesa úr niðurstöðum launakönnunar, sem gerð var fyrr á þessu ári. Ýtarlegri niðurstöður verða birtar um miðjan september að því er kemur fram á heimasíðu félagsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert