Eldur kviknaði í íbúð í Vestmannaeyjum

Slökkviliðsmenn að störfum við Vesturveg í Eyjum í dag.
Slökkviliðsmenn að störfum við Vesturveg í Eyjum í dag. mbl.is/Sigurgeir

Eldur kviknaði í íbúðarhúsi við Vesturveg í Vestmannaeyjum nú síðdegis. Að sögn lögreglu voru slökkviliðsmenn fljótir á staðinn og náðu þeir strax tökum á eldinum, sem kviknaði út frá steikingarpotti. Þrennt var í húsinu þegar eldurinn kom upp og komust allir greiðlega út. Mikill eldur var í húsinu þegar slökkvilið kom á vettvang en slökkvistarf gekk vel. Húsið er mikið skemmt ef ekki ónýtt.

Slökkvilið að störfum við Vesturveg í Eyjum í dag.
Slökkvilið að störfum við Vesturveg í Eyjum í dag. mynd/Eyjafrettir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert