„Þarna hittum við á sannkallaða óskastund"

Sturla Birgisson í Straumunum í Norðurá

Sturla Birgisson í Straumunum í Norðurá Einar Falur Ingólfsson

Laxveiðimenn líkja ástandinu í ánum þessa dagana við það sem menn eiga frekar að venjast við bestu skilyrði í júlímánuði. Eftir langvarandi þurrka sumarsins er loksins gott vatn í ánum, lax að dreifa sér og víða er hann að ganga af krafti. Holl sem var við veiðar í Norðurá um helgina landaði um 90 löxum og var lax að finna á öllum helstu göngustöðum árinnar. Hollið sem var í Langá á sama tíma veiddi 111 laxa, og samkvæmt upplýsingum fréttavefjar SVFR er mikið af laxi í ánni. Til að mynda gengu 130 laxar stigann í Sveðjufossi á einum sólarhring.

Blaðamaður kom við á Alviðru í Sogi um helgina og þá höfðu um 150 laxar verið færðir þar til bókar, sem er afar mikil breyting frá því í fyrra er 17 veiddust á svæðinu. Var greinilega mikið af laxi á sumum veiðistöðunum, eins og í Kúagili sem og við Klöppina og Tunnu. Höfðu Klöppin og Breiðan gefið tæplega 50 laxa hvor veiðistaður.

Lentum í ævintýri

"Við lentum í sannkölluðu ævintýri," sagði Björn Ólafsson, fyrrverandi skólastjóri, um veiðiferð þeirra félaganna í Haukadalsá í síðustu viku. Þegar þeir mættu höfðu veiðst um 200 laxar í ánni, en það var nóg af fiski, hann lá bara styggur á nokkrum stöðum. "Fyrstu vaktina veiddum við þrjá laxa, en þá var líka farið að rigna og laxinn fór að hreyfa sig. Næstu fimm vaktir fengum við síðan 90 laxa, á stangirnar fimm!

Ein stöngin fékk 27 laxa, ein 17 – svona var þetta. Ég fékk 19 á flugu, rauður Frances númer 14 var gegnumgangandi."

Björn sagði veiðimenn hafa farið út um níu á morgnana og verið komna í hús um klukkan átta; í ánni var bullandi taka.

"Við fengum þessa fiska um alla á, líka lúsuga fiska. Þarna hittum við á sannkallaða óskastund. Það var nóg af fiski í ánni, svo fór að rigna, það var hlýtt í veðri, og allt fór af stað."

Víðar í Dölunum veiðist vel. Þarsíðasta holl í Flekkudalsá fékk til að mynda 10 laxa og þar veiddust lúsugir laxar í gær, sem er afar óvenjulegt svo seint í ágústmánuði.

Eystri-Rangá yfir 4.000

Eins og rækilega hefur komið fram er mokveiði þessa dagana í Rangánum. Í Eystri-Rangá veiddist lax númer 4.000 í gærmorgun og í hléinu var veiðin komin í 4.065. Um fimmtíu til veiddust á seinni vaktinni. Eftir að tók að rigna í þarsíðustu viku hefur áin verið illveiðandi í nokkra daga, vegna skols, en samt hefur göngufiskur verið að taka í grugginu, að sögn Einars Lúðvíkssonar og þá daga hafa nokkrir tugir laxa veiðst. Um leið og áin hreinsar sig hefur veiðin aftur orðið á bilinu 120 til 150 laxar á dag.

Húnvetnsku árnar hafa einnig tekið kipp í vætutíðinni en að sögn Stefáns Sigurðssonar hjá Lax-á hafa verið að veiðast um 20 laxar á dag í Víðidalsá og allt að 40 á dag í Miðfjarðará.

Í hnotskurn
» Mjög góð laxveiði er víða. Veiðimenn líkja ástandinu við kjörveiðitíma í júlímánuði.
» Holl sem var við veiðar í Norðurá um helgina fékk um 90 laxa, á sama tíma veiddust 111 í Langá.
» 93 laxar veiddust á stangirnar fimm í Haukadalsá í Dölum á sex vöktum í síðustu viku. Fram að því hafði áin gefið um 200 laxa.
» Veiðin í Eystri-Rangá er komin yfir 4.000 laxa. Á annað hundrað veiðist á dag.

efi@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »
Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HÚSBÍLL
FORD 1986 38" ísskápur, vaskur og eldavél. verð 390.þús. uppl. 6595055...
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Furminator kambarnir eru til í öllum stærðum
Ný sending af Furminator kömbunum vinsælu 4 stærðir í boði fyrir öll gæludýr sma...
TOYOTA COROLLA 1600
Toyota Corolla 1600 sjálfskiptur, til sölu. Nýskráður 0...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
Útboð hólmavíkurhöfn

STRANDABYGGÐ Útboð Hólmavíkurhöfn...
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...