Bíll fastur í Skillandsá

Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni var kölluð út um klukkan 17:30 í dag vegna bifreiðar sem föst var í Skillandsá við bæinn Miðdal í Bláskógabyggð. Tveir menn voru í bílnum og þegar björgunarsveitin kom á staðinn voru þeir orðnir blautir þar sem flætt hafði inn í bílinn.

Fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg að vel hafi gengið að draga bílinn á þurrt land og aðstoðuðu björgunarsveitarmenn eigendurna við að koma honum í ökuhæft ástand eftir volkið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert