Fangar á Litla-Hrauni ekki öruggir í eldsvoða

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Fangelsið á Litla-Hrauni. mbl.is/RAX
Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is
Fangar á Litla-Hrauni eru ósáttir við ástand brunavarna í fangelsinu og telja að öryggi sitt sé ekki tryggt komi upp eldsvoði. Greint var frá því í Morgunblaðinu þann 29. ágúst að fangelsisyfirvöld teldu brunavarnir í góðum farvegi. „Það er allt annað en það sem blasir við okkur sem búum hér árum saman," segir Magnús Einarsson talsmaður Afstöðu, félags fanga.

„Við höfum barist fyrir þessu í nokkur ár og þó sérstaklega núna upp á síðkastið, en okkur er sagt að verið sé að athuga málið og heyrum svo ekki meir. Við erum bara að benda á atriði sem geta skipt sköpum við björgun mannslífa og viljum að þessu sé kippt í liðinn."

Að sögn Magnúsar er ástandið sérstaklega slæmt í húsi 3, þar sem eru 22 klefar og allir læstir með slagbrandi og hengilás að utan á kvöldin.

Nánar er fjallað um þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert