Vart við hrun í Gígjökli

Lögreglan á Hvolsvelli vekur athygli á því að undanfarið hefur orðið vart við hrun í Gígjökli. Jakar hafa hrunið ofan í lónið og valdið minniháttar flóðbylgjum niður ána. Við þetta hefur áin dýpkað og jakar og hröngl borist niður ána. Ferðalöngum er því ráðlagt að hafa varann á, þó sérstaklega í myrkri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert