Forseta Íslands boðið til fundar um orkumál á Bandaríkjaþingi
Ólafur Ragnar Grímsson. mbl.is/Ómar
Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, hefur verið boðið til fundar, svokallaðrar yfirheyrslu, hjá öldungadeild Bandaríkjaþings, um orkumál nú í lok september. Ólafur Ragnar sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins, er hann tók þátt í ráðstefnu um orkumál á vegum Glitnis í New York í dag, að hann væri að öllum líkindum fyrsti þjóðhöfðinginn í Evrópu sem hefði verið boðið til slíkra viðræðna.
Segir Ólafur Ragnar að yfirheyrslurnar séu tæki Bandaríkjaþings að fá til sín fólk með þekkingu og reynslu víða að til viðræðna um ýmis mál og hann hafi ákveðið að þiggja boðið. Þetta sé í raun yfirlýsing um áherslubreytingar, að Bandaríkjaþing ætli að efna til sérstakra funda þar sem stór hópur öldungadeildarþingmanna fær tækifæri til þess að spyrja um þessi mál.
Orkumál að komast í tísku
Í erindi sínu kom Ólafur Ragnar inn á orkuverkefni Íslendinga í Kína og segir að með því að gera samning við eina borg í Kína um byggingu hitaveitu þá hafi boltinn farið að rúlla og í sumar hafi margar sendinefndir komið til Íslands frá Kína í þeim tilgangi að ræða frekara samstarf á þessu sviði.
„Ég hef fengið boð frá borgaryfirvöldum í Los Angeles um að koma til viðræðna um að hvaða leyti Los Angeles geti nýtt sér jarðhita. Ólafur Ragnar segist vera þeirrar skoðunar eftir viðræður á þessu ári við bæði fjölda þingmanna í fulltrúadeildinni og fulltrúa í orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna og menn í öflugum fjárfestingarfyrirtækjum sem og fólk úr skemmtana- og kvikmyndaiðnaðinum að það eru hugsanlega að verða þau þáttaskil í Bandaríkjunum að orkumál komist í tísku.
„Bandarískt samfélag er nú einu sinni þannig að ef hlutir komast í tísku þá kemur bylgja. Ég hef sagt við íslensku orkufyrirtækin og bankana að kannski verður þá vandinn að við séum í stakk búnir til að taka á öllum þessum verkefnum. Alveg eins og við höfum skynjað á Íslandi í sumar í viðræður við sendinefndirnar sem hafa komið frá Kína að núna eru þeir í alvöru að ræða hvernig þeir geti margfaldað þessar framkvæmdir. Sú ákvörðun þeirra að færa jarðhitaverkefni yfir á æðsta stjórnunarstig innan orkusviðsins er stefnuyfirlýsing um hvert þeir ætla að fara. Að því leyti til finnst mér að opna skrifstofu hér í New York getur líka verið mikilvægt tækifæri í að leita bandamanna hér í Bandaríkjunum, ekki einungis hér heldur víða um heim,” sagði Ólafur Ragnar í samtali við Morgunblaðið.
Forsetinn sagðist hafa átt mjög árangursríka fundi í Bandaríkjunum við ráðamenn þar fyrr á þessu ári. Meðal annars komu í kjölfarið komu þrjár sendinefndir ráðamanna til Íslands í sumar og segir Ólafur Ragnar það merkilegt að ári eftir að bandaríski herinn fer frá Íslandi þá koma fleiri sendinefndir frá bandaríska þinginu og á vegum bandarískra stjórnvalda til Íslands en áður.





































