Kennarasambandið lýsir áhyggjum af ástandi í leik- og grunnskólum

Stjórn Kennarasambands Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem lýst er yfir miklum áhyggjum vegna þess alvarlega ástands sem nú ríkir í leik- og grunnskólum, aðallega á höfuðborgarsvæðinu. Segir stjórnin að fjölmargar stöður séu ómannaðar og álag á starfsfólki langt umfram það sem eðlilegt megi telja. Þetta ástand bitni harkalega á nemendum og foreldrum þeirra með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Skorar stjórn KÍ á sveitarstjórnarmenn að grípa nú þegar til úrræða sem dugi til að manna lausar stöður og nýta sér ákvæði kjarasamninga til að greiða hærri laun en lágmark kjarasamninga kveða á um.

Þá lýsir stjórnin furðu sinni á ummælum formanns leikskólaráðs Reykjavíkurborgar um að kenna megi því sem formaðurinn kallar jafnlaunastefnu KÍ um erfiðleika við mönnun skóla. Stjórn KÍ segist af þessu tilefni vilja taka fram, að ekkert í kjarastefnu sambandsins standi í vegi fyrir því að greiða megi hærri laun en kjarasamningar kveða á um.

„Stjórn Kennarasambands Íslands skorar á borgarstjórn Reykjavíkur sem og aðrar sveitarstjórnir að sýna nú metnað sinn fyrir hönd skólastarfs og greiða þau laun sem nauðsynleg eru og tryggja með því stöðugleika í skólastarfi. Það að slá ryki í augu almennings eins og formaður Leikskólaráðs Reykjavíkurborgar hefur gripið til getur aldrei leitt til farsællar lausnar á þeim vanda sem við blasir. Sá vandi verður aðeins leystur með því að skólarnir verði samkeppnishæfir hvað varðar laun og önnur starfskjör. Lausnin er í höndum rekstraraðilanna – sveitarfélaganna í landinu," segir í ályktun KÍ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert