Tíu hús verði friðuð
Frá Laugavegi og Bankastræti mbl.is/G. Rúnar
fridrik@mbl.is
Húsafriðunarnefnd hefur gert það að tillögu sinni að tíu hús við Laugaveg verði friðuð. Í tillögunni er einkum litið til þess að húsin hafi mikið gildi fyrir umhverfi sitt, hafi listrænt verðmæti og sum þeirra talsvert menningarsögulegt gildi. Þá telur nefndin mikilsvert að varðveita byggingarsögulega fjölbreytni þessa hluta miðbæjarins og tengsl Laugavegar við aðliggjandi götur sem margar hverjar hafa varðveitt upphaflegt svipmót. "Þetta eru hús sem sóma sig vel við Laugaveginn og öll eru þau ákveðin kennileiti. Við ákvörðun okkar horfðum við mikið til varðveislu gatnamóta og húsaraða," segir Magnús Skúlason, forstöðumaður húsafriðunarnefndar.
Húsin ekki rifin þrátt fyrir nýtt skipulag
Húsin sem um ræðir standa á lóð við Laugaveg 10, 11, 12, 20B, 21, 29, 30, 41, 44 og 64. Árið 2005 var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir Laugaveg og aðliggjandi götur. Þar var kveðið á um heimild til að rífa 25 hús sem öll voru byggð fyrir árið 1918. Fjögur þeirra húsa sem húsafriðunarnefnd hefur lagt til að verði friðuð voru í hópi þessara húsa. Þetta eru húsin við Laugaveg 11, (Ítalía) 21, (Kaffi Hljómalind) 29, (Brynja) og 41.Ef menntamálaráðherra samþykkir tillögur húsafriðunarnefndar er auðsýnt að umrædd hús verða ekki rifin, enda er farið fram á friðunina nú til að hamla niðurrifi húsanna, að sögn Magnúsar.
Magnús kveður núverandi eigendur húsanna muni ekki tapa neinum fermetrafjölda að ráði ef tillögurnar verða að veruleika. Hann tekur sem dæmi húsið við Laugaveg 21, þar sem Kaffi Hljómalind er til húsa. Þar sé illmögulegt að bæta við fermetrafjölda með því að byggja nýtt hús á þeim stað sem gamla húsið stendur, þótt mögulegt sé að reisa nýbyggingar á lóðinni, á bak við gamla húsið.
Sjá nánar í Morgunblaðinu.
Bloggað um fréttina
-
Einar Lee lengi haldið á ljóta ímynd miðbæjar -
Sigurður Hrellir Ekki seinna vænna
Innlent »
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. september 2007, Innlent Húsafriðunarnefnd vill friða öll húsin þrjú
- Þriðjudagur, 8. janúar 2008, Innlent Ráðherra friði Laugavegshús
- Föstudagur, 11. janúar 2008, Innlent Myndum fara að tillögunni
- Þriðjudagur, 29. janúar 2008, Innlent Örlög 10 húsa til viðbótar í höndum ráðherra
- Þriðjudagur, 13. nóvember 2007, Innlent Þrjú hús friðuð á Akureyri
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































