Bensínverð lækkar

Verð á bensíni lækkaði hjá Skeljungi í gær um 0,80 krónur lítrinn. Er algengt verð í sjálfsafgreiðslu á stöðvum félagsins þá 127,20 krónur. Verð á dísilolíu er óbreytt, eða 126 krónur lítrinn í sjálfsafgreiðslu. Hjá Olís er bensínverð áfram 128 krónur en dísilolíulítrinn kostar einnig 128 krónur á stöðvum félagsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert