Aldrei jafn margir að læra ensku í grunnskóla og nú
mbl.is
Dönskunemum hefur hins vegar fækkað samhliða fækkun nemenda í elstu bekkjum grunnskólans og læra nú 18.106 nemendur grunnskólans dönsku. Alls völdu 158 nemendur sænsku og 125 nemendur norsku í stað dönsku. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Hagstofu Íslands í tilefni af degi tungumála í Evrópu 26. september.
Í nokkrum skólum hefst kennsla í erlendum tungumálum fyrr en kveðið er á um í aðalnámsskrá. Fleiri 6 ára nemendur læra nú ensku en nokkru sinni fyrr. Skólaárið 2006-2007 lærðu 1.879 nemendur í 1.-3. bekk ensku í grunnskólum landsins, sem er rúmlega 70% fjölgun frá fyrra skólaári, en þá lærðu 1.111 nemendur í 1.-3. bekk ensku.
Nemendum í spænsku heldur áfram að fjölga
„Í mörgum grunnskólum landsins er nemendum boðið að læra þriðja erlenda tungumálið. Fram til skólaársins 2004-2005 lögðu flestir nemendur stund á nám í þýsku eða frönsku. Síðan þá hefur spænskan verið næstvinsælasta tungumálið á eftir þýsku. Skólaárið 2006-2007 völdu 633 nemendur þýsku en 530 spænsku Þar á eftir völdu 262 nemendur frönsku. Fjöldi nemenda í spænsku heldur áfram að aukast og nemendum í þýsku fjölgar einnig milli ára, eða um 7,7%. Er það viðsnúningur frá fyrri árum þegar þýskunemum fækkaði milli ára," samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands.
Þann 18. september sl. kom út ritið Education at a Glance 2007 á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. Þar eru m.a. birtar tölur frá skólaárinu 2004-2005 um hlutfall kennslustunda sem varið er í einstakar námsgreinar. Þegar skoðaðir eru tveir aldurshópar, annars vegar 9-11 ára nemendur og hins vegar 12-14 ára nemendur, kemur í ljós að hin Norðurlöndin verja hlutfallslega fleiri kennslustundum til tungumálakennslu 9-11 ára nemenda en Íslendingar. Á Íslandi er 4% kennslustunda á þessum aldri varið til tungumálakennslu, en 6-12% kennslustunda á hinum Norðurlöndunum. Meðaltalið innan OECD ríkjanna er 7%. Annað kemur í ljós þegar 12-14 ára hópurinn er skoðaður. Þá kenna Íslendingar bæði ensku og dönsku og verja 17% af heildarkennslutíma til kennslu í erlendum tungumálum, á meðan meðaltal OECD ríkja er 12%. Vert er að benda á að þetta eru tölur frá skólaárinu 2004-2005 og að frá þeim tíma hefur orðið töluverð aukning í enskukennslu í yngstu bekkjum grunnskólans hér á landi, samkvæmt samantekt Hagstofunnar.





































