Sex mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir ofbeldi gagnvart lögreglu

Karlmaður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á tvo lögregluþjóna á Grenivík í júní og tvo lögregluþjóna í Stykkishólmi í ágúst. Maðurinn, sem er rúmlega tvítugur játaði brot sín fyrir dómi en hann hefur ekki áður gerst sekur um ofbeldisverk áður. Hann hefur hins vegar hlotið dóm fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og rauf skilorð með brotum sínum nú.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert