Enn mokveiði í Eystri-Rangá, yfir 6.000 landað

Einar Falur Ingólfsson

Eftir Einar Fal Ingólfsson

efi@mbl.is

Laxveiðinni er lokið eða um það bil að ljúka víðast hvar. Í Rangánum er þó veitt fram í október og ekkert lát er á veiðinni þar, í fyrrakvöld fór eystri áin yfir 6.000 laxa.

"Síðasta vika var mjög góð, laxinn var fljótur að jafna sig eftir öll flóðin í vikunni þar á undan; flestir dagarnir gáfu yfir 100 laxa. Ég held að þessi vika verði allt eins góð, gæti endað í 600 löxum," segir Einar Lúðvíksson, umsjónarmaður Eystri-Rangár. Morgnarnir hafa verið rólegir, enda kalt í bítið, en laxinn hefur farið að taka upp úr klukkan tíu "og þá gerist þetta hratt."

Veitt er í Eystri-Rangá til 10. október og nokkra daga til á ákveðnum svæðum árinnar. Einar er farinn að hugsa fram í tímann og leyfir sér ekki að dvelja mikið við að fagna góðum árangri sumarsins. "Nú er ég farinn að hafa áhyggjur af því hvernig gangi að viðhalda þessari góðu veiði. Í fyrra var veiðin í meðallagi en þá vildu menn veiða jafn mikið og sumarið 2005, eða yfir 4.000 laxa. Nú getum við farið í 7.000 og þá hljóta menn að gera kröfu um álíka veiði áfram!"

Nærri 800 í Kjósinni

Ennþá er að veiðast lax á neðsta svæði Laxár í Kjós, en veiði lýkur þar í dag. Síðustu fimm dagana hefur verið svokallaður sjóbirtingstími í ánni. Lokatalan verður nærri 800 löxum. Mikið af fiski er dreift um alla á en veiðin hrökk seint í gang sökum hinna langvarandi þurrka í sumar. Að sögn Gísla Ásgeirssonar íhuga leigutakar Laxár að ræða við veiðifélagið um að opnun árinnar verði færð aftur til 20. júní, og að þá verði jafnframt veitt til 20. september og eftir 1. september undir merkjum veiða og sleppa.

Síðasti veiðidagurinn í Selá í Vopnafirði var í gær og lokatalan nærri 2.250 löxum. Er það nokkuð lakari útkoma en í fyrra, er veiddust 2.715, en engu að síður langt yfir meðaltalsveiði síðasta áratugar. "Veiðin varð daufari síðustu dagana, sökum kulda," sagði Gísli. Um 315 laxar veiddust í Svalbarðsá og Grímsá endaði í rétt tæplega 1.100. Þá veiddust 220 laxar í Korpu.

Meinað að kaupa leyfi

Í Leirvogsá veiddust 379 laxar á stangirnar tvær. Hefur oft veiðst betur en þetta er þó betri veiði en í fyrra, er 299 laxar veiddust. Eru þetta um 2,2 laxar á stöng á dag.

Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur hefur fjallað um mál veiðimannanna átta sem var vísað úr Hítará 12. september sl., fyrir að veiða á maðk á þeim tíma er fluga var eina leyfilega agnið. Niðurstaða stjórnarinnar er að allir séu veiðimennirnir brotlegir, þeir fjórir sem voru í ánni við veiðar og eins félagar þeirra á bakkanum, sem vissu af athæfinu og eru því meðsekir. Verður veiðimönnunum óheimilt að kaupa veiðileyfi af félaginu næstu þrjú árin.

Í hnotskurn
» Í Eystri-Rangá hafa veiðst yfir 6.000 laxar. Síðasta vika gaf yfir 100 laxa á dag.
» Veiði lýkur í Laxá í Kjós í dag. Veiðin er nálægt 800 löxum, um 400 löxum undir meðaltalsveiði síðustu tíu ára.
» Veiðimönnum er brutu veiðireglur í Hítará á dögunum, er þeir veiddu á maðk, verður meinað að kaupa veiðileyfi hjá SVFR næstu þrjú árin.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »
Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gisting á Höfuðborgarsvæðinu.
Erum með laus herbergi í gistiheimilinu. Tilboð í maí. Gistiheimilið Lily Nýb...
50cc amerísk vespa
sem ný. Verð 180þ Upplýsingar 8220571 eða hris@internet.is...
FÖNDURSETT Í ÚRVALI
Föndursett í úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid...
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
 
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...