Veggjakrotari staðinn að verki

Jim Smart

Tæplega hálfþrítugur karl var staðinn að veggjakroti í Kringlunni í gærkvöld. Hann viðurkenndi brot sitt en að öðru leyti var fátt um svör þegar hann var spurður um þetta athæfi. Maðurinn hefur einu sinni áður komið við sögu hjá lögreglu vegna veggjakrots en vonandi lætur hann nú af þessari iðju, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert