Fulltrúi VG telur vafa leika á lögmæti eigendafundar OR

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur.

Höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur. mbl.is/Þorkell

Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, lét bóka á stjórnarfundi fyrirtækisins í dag, að boðun eigendafundar vegna fyrirhugaðs samruna Reykjavík Energy Invest, dótturfélags OR, og Geysir Green Energi, stæðist ekki með tilvísun í sameignarsamning Orkuveitunnar.

Svandís segir í bókun sinni, að samkvæmt ákvæðum sameignarsamningsins skuli halda eigendafundi eftir ákvörðun stjórnar eða kröfu sameigenda, sem ráði yfir að minnsta kosti 5% eignarhluta. Slíkar kröfur skuli gerðar skriflega til stjórnar og til eigendafundar boðað með 7 daga fyrirvara á grundvelli kröfunnar.

Segir Svandís, að þar sem fundarboðið standist ekki geti fundurinn ekki skoðast lögmætur og þar með ekki heldur þær ákvarðanir, sem kunni að vera teknar á honum. Segist Svandís áskilja sér rétt til að láta reyna á lögmæti fundarins.

Undirbúningsfundur til að ræða samruna Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy var boðaður klukkan 9 í morgun fyrir fulltrúa minnihluta í stjórn Orkuveitunnar. Svandís segir í annarri bókun, að á stjórnarfundi OR klukkan 15:15 í dag hafi stjórninni verið ætlað að taka ákvarðanir um gríðarlega hagsmuni og þar með umtalsverða ráðstöfun á almannafé. Þar sem ekki hafi gefist nægilegt ráðrúm til að taka efnislega afstöðu til samrunans á þessum þremur klukkutímum tali fulltrúi Vinstri grænna ekki efnislega afstöðu til málsins. Samruninn kunni að vera skynsamlegur en þar sem um eign stjórnvalds sé að ræða hljóti að þurfa að gera ærnari kröfur um undirbúning máls og upplýsta umræðu en gefst á þremur tímum.

Loks lét Svandís bóka, að kaup starfsmanna Reykjavík Energy Invest í fyrirtækinu kunni að orka tvímælis í ljósi starfsskyldna þeirra og stöðu gagnvart eigendum. Af þeim sökum þarfnist slík kaup sérstakrar skoðunar og þurfi að þola dagsljósið og umræðu úti í samfélaginu á öllum stigum málsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Héraðsdómur Suðurlands.

Alsírsku drengirnir áfrýja

16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í héraðsdómi Suðurlands fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »
Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gasgrill
Til sölu gasgrill með hitaplötu. Tilboð. Uppl. í síma 863-7512...
Sumarbústaður í sveit www.hrosshagi.com
Til leigu vel búinn bústaður f. 4-6 manns í Biskupstungum. Heitur pottur, gasgri...
Húsbíll til sölu - Fiat, Sharky L7
2007 árgerð af Sharky L7 til sölu. Keyrður 24þ km. Vel viðhaldið og þjónustubók ...
225-70-15C
óska eftir heilsárs dekkjum undir sendibíl að stærðinni 225-70-15C. Upplýsingar ...
 
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...