„Þeir hagnast á glæpastarfsemi"

Snæbjörn Steingrímsson

Snæbjörn Steingrímsson

„Þeir sem reka síðuna eru klárlega að hagnast á glæpastarfsemi," segir Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri Smáís, um eigendur vefsíðunnar Torrent.is. „Málið er á borðinu hjá lögreglunni. Það er bara spurning hvenær það verður tekið fyrir."

Torrent.is er vefsíða sem gerir notendum Bittorrent-tækninnar kleift að skiptast á tónlist, kvikmyndum og tölvuleikjum án endurgjalds. Fyrirtækið Istorrent ehf. hefur verið stofnað í kringum rekstur vefsíðunnar Torrent.is og eiga notendur nú kost á að greiða fyrir greiðari aðgang að efninu.

Snæbjörn segist vona að ríkislögreglustjóri sýni Smáís skilning, en í október í fyrra skoruðu samtökin á eigendur Torrent.is að loka síðunni. „Það er út í hött að þetta fái að viðgangast," segir hann. „Nú er hægt að sýna fram á að menn hagnast á síðunni. Þeir eru komnir með beinan fjárhagslegan hagnað af því sem við viljum meina að sé glæpastarfsemi." Svavar Lúthersson, framkvæmdastjóri Istorrent ehf., vísar því á bug að fyrirtækið hagnist á ólöglegu efni. „Mér finnst hart af honum að kalla okkur glæpamenn," segir hann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Útvarpshúsið við Efstaleiti.

Takmarkanir verði á auglýsingum

18:04 Í drögum nefndar á vegum menntamálaráðherra um endurskoðun laga um RÚV er m.a. lagt til settar verið takmarkanir á sjónvarpsauglýsingar, sem munu skerða tekjur RÚV af birtingu auglýsinga um 15%. Meira »
Margir hafa áhyggjur af stöðu mannréttindamála í Aserbaídsjan.

Evróvisjón í skugga kúgunar?

17:29 Senn líður að hinni árlegu Evróvisjónkeppni. Nokkur styr stendur um keppnina í ár, sem verður haldin í Aserbaídsjan, en þar þykir pottur víða brotinn í mannréttindamálum. Mannréttindasamtök segja tjáningar- og félagafrelsi takmarkað og samkynhneigðir Aserar sæta áreitni lögreglu og stjórnvalda. Meira »

Bæta þarf eftirlit með samningum

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur m.a. gert skuldbindandi samning við Ríkisútvarpið ohf.
17:06 Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert fjölmarga samninga við aðila utan ríkisins um að þeir taki að sér verkefni gegn greiðslum. Ríkisendurskoðun telur að bæta þurfi eftirlit með framkvæmd samninganna sem og ýmislegt annað sem tengist umsýslu þeirra. Meira »

Margrét er sátt við flutning

Margrét Frímannsdóttir er sátt við flutning fangelsisstarfseminnar á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi.
16:32 „Sogn býður upp á marga góða kosti, við erum sátt við þennan stað,“ segir Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, um þá hugmynd að flytja fangelsisstarfsemina á Bitru í Flóahreppi að Sogni í Ölfusi. Meira »

„Þetta er hræðilegt, ég er í áfalli“

Tómur skartsgripastandur í verslun Lauru Ashley.
16:16 Brotist var inn í verslun Lauru Ashley í nótt og þaðan stolið öllum skartgripum og öðrum vörum. Tvö önnur innbrot voru framin í verslunum í nágrenninu í nótt. Meira »

Krafðist að dómari viki vegna óvildar föður

Hæstiréttur
16:41 Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu manns um að dómari viki sæti var hafnað. Maðurinn byggði kröfu sína á meintri óvild látins föður dómara í garð látins föður stefnda. Meira »

„Kemur ekki á óvart“

Sigurjón Þórðarson
16:24 „Þessi dómur kemur mér ekki á óvart,“ segir Sigurjón Þórðarson, formaður Frjálslynda flokksins, um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Reykjavíkurborg beri að greiða Frjálslynda flokknum tæpar sjö milljónir króna sem greiddar voru til Borgarmálafélags F-listans sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi borgarstjóri, hafði umráð yfir. Meira »

Miðar hægt en örugglega niður

Tveir Bretar voru sóttir á Vatnajökul í morgun. Þeir eru nú á leið niður af ...
16:15 Björgunarleiðangrinum á Vatnajökli miðar hægt en örugglega til byggða með Bretana tvo sem óskuðu eftir aðstoð í morgun. Slæm færð er á svæðinu og veður versnandi. Meira »

Nauðgunarmál enn í rannsókn

16:07 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn til rannsóknar nauðgunarkærur á hendur Agli Einarssyni. Í síðustu viku sendi ríkissaksóknari málið aftur til lögreglu til frekari rannsóknar. Sú rannsókn gengur ágætlega og á lögreglan von á að henni muni ljúka í lok næstu viku. Meira »

Varað við ísingu

15:43 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því hætta sé á að það myndist lúmsk ísing á vegum sunnan- og vestanlands nú síðdegis þegar fer að frysta á ný. Meira »

Frjálslyndi flokkurinn vann

Ólafur F. Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi.
15:46 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Frjálslynda flokknum í vil í dómsmáli sem reis vegna ágreinings um hver ætti að fá framlag Reykjavíkurborgar vegna framboðs til borgarstjórnar. Borginni er gert að greiða 6,7 milljónir, auk vaxta, til flokksins. Meira »

Ríkisstjórnin móti sameiginlega ESB-stefnu

Þinghús ESB í Strasbourg.
15:42 Fram kemur í uppkasti að ályktun utanríkismálanefndar þings Evrópusambandsins frá síðastliðnum mánudegi að fulltrúar í nefndinni hefðu áhyggjur af því að ríkisstjórnarflokkarnir hér á landi, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Samfylkingin, séu ekki samstíga í afstöðu sinni til inngöngu í sambandið. Meira »

Jarðskjálfti upp á 3,8 stig

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg. Sá stærsti var 3,8 á richter kvarða.
15:39 Skjálftahrina hefur staðið yfir síðan í morgun á Reykjaneshrygg. Hafa 4-5 skjálftar náð yfir 3 stigum, sá stærsti upp á 3,8 stig. Meira »

„Verða á endanum að standa fyrir eitthvað“

15:09 „Það er ljóst að skoðanakannanir benda til þess að það séu margir óákveðnir kjósendur, við erum að tala um 30-40% kjósenda, og það er lítið traust til Alþingis þannig að það er alveg ljóst að ný framboð gætu átt talsverða möguleika,“ segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. Meira »

1.300 tonn í fjórum köstum

Víkingur AK-100
14:58 Víkingur AK er nú á leið til Akraness eftir vel heppnaða veiðiferð á loðnumiðin á Grímseyjarsundi. Þar fengust um 1.300 tonn af góðri loðnu í fjórum köstum frá því í gærmorgun og fram til kvölds. Meira »

Heitavatnslaust í Fossvogi á morgun

Starfsmenn Orkuveitunnar
15:25 Heitavatnslaust verður frá kl. 9:00 í fyrramálið í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Vonast er til að viðgerð verði lokið uppúr kl. 19:00 sama dag. Meira »

Dæmdur fyrir vörslu fíkniefna

Kannabis
15:03 Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu fíkniefna. Meira »

Mega ekki fá nýja púða strax

Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um ...
14:40 Þær konur, sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum, geta ekki fengið nýja púða um leið og PIP-púðarnir verða fjarlægðir.Ekki er talið óhætt að setja strax nýja púða þar sem þeir leku gætu hafa ert vefi í líkama kvennanna. Þetta segir sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
MAZDA 323 ÁRGERÐ 1997
MAZDA 323 ÁRGERÐ 1997 TIL SÖLU. BÍLLINN ER Á GÓÐUM NAGLADEKKJUM OG ÞAÐ FYLGJA SU...
Heilsa og fegurð Turinum Smáratorgi.
Heilsa og fegurð er heillandi og glæsileg snyrtistofa í Turninum Smáratorgi 568-...
FLOTTIR DÖMUSKÓR
Teg. 37248 Flottir dömuskór úr leðri, skinnfóðra...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, uppþvottavélar, ...
 
Vélavörður á sighvat gk-57
Sjávarútvegur
Vélavörður Vísir hf. óskar eftir vél...
Verkefnastjórar
Augl-/almannatengsl
Veitir Ísland þér innblástur? Við lei...
Útboð lýsing borgarleikhúsið - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­up...
Sýslumaðurinn á ísafirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....