Margrét Sverrisdóttir nýr forseti borgarstjórnar
Margrét Sverrisdóttir Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Hanna Birna Kristjánsdóttir var kjörin fyrsti varaforseti borgarstjórnar með öllum greiddum atkvæðum en hún er fráfarandi forseti borgarstjórnar.
Svandís Svavarsdóttir var kjörin annar varaforseti borgarstjórnar með átta atkvæðum. Auðir seðlar voru sjö.
Á fundinum var Dagur B. Eggertsson kjörinn borgarstjóri en engar aðrar tillögur bárust á fundinum og því ekki greidd atkvæði um kjör nýs borgarstjóra til loka kjörtímabilsins.
Björk Vilhelmsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Björn Ingi Hrafnsson, Margrét Sverrisdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Hann Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson voru kjörin í borgarráð til júní 2008.
Dagur þakkaði nýjum meirihluta fyrir það traust sem honum sé sýnt með að verða valinn nýr borgarstjóri Reykjavíkur. Hann segir meirihlutann vera þakklátan fyrir að fá tækifæri til að hrinda sínum málum í framkvæmd. Hann sagði að sér væri hins vegar efst í huga það sameiginlega verkefni allrar borgarstjórnarinnar að endurvekja það traust sem borgarstjórn verður að njóta og þau fyrirtæki sem hún á aðild að. Sagði Dagur að málefni Orkuveitunnar sýni að nauðsynlegt sé að ástunda fagleg vinnubrögð og heiðarleg. Segir hann að það mál rammi það inn að ef einhvern tíma, einhverra hluta vegna, vegna gleymsku eða vegna annarra hluta þá geti illa farið. Segir Dagur að verkefnin séu hins vegar miklu fleiri í borginni heldur en málefni OR. Þar megi nefna málefni leikskólanna, öldrunarþjónustunnar, grunnskólanna ofl.
Hann þakkaði fráfarandi meirihluta fyrir samstarfið og sagði að nýr meirihluti muni halda áfram með mörg þeirra verkefna sem fyrri meirihluti hóf á sinni valdatíð. Vildi Dagur sérstaklega þakka Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni fyrir hans störf og bætti því við að þrátt fyrir harða umræðu undanfarið þá hafi hann að mörgu leyti verið góður borgarstjóri og fyrir það verði að þakka.
Björn Ingi Hrafnsson kvað sér hljóðs á fundinum og vildi þakka fyrrum félögum í meirihlutasamstarfinu fyrir samstarfið sem að flestu leyti hafi verið gott og borginni til heilla. Björn Ingi vildi sérstaklega þakka Vilhjálmi Þ. fyrir vináttu og samstarfið og sagði að nafn Vilhjálms myndi væntanlega lifa lengur heldur en annarra þeirra sem nú sitja í borgarstjórn.
Kjörnir í stjórn Faxaflóahafna voru þau Sigrún Elsa Smáradóttir, Árni Þór Sigurðsson, Björn Ingi Hrafnsson. Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson. Var Björn Ingi kjörinn formaður Faxaflóahafna.
Í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur voru kjörin Bryndís Hlöðversdóttir, Ástráður Haraldsson, Jón Sigurðsson, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson. Bryndís verður formaður og Jón verður varaformaður stjórnar OR til júní 2008, samkvæmt samþykkt á fundi borgarstjórnar.
Svandís Svavarsdóttir var kjörin fulltrúi í stjórn Strætó og Margrét Sverrisdóttir var kjörin varamaður í stjórn Strætó.
|
|
Nefndarskipan |





































