Veigrar fólk sér við að hringja í Neyðarlínuna?

Hrund Snorradóttur var mjög brugðið þegar hún komst að því að ekki hafði verið kallað ...

Hrund Snorradóttur var mjög brugðið þegar hún komst að því að ekki hafði verið kallað á hjálp. Morgunblaðið/Jón Sigurðarson

Morgunblaðið Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.
Ung kona frá Vopnafirði, sem sat föst í bíl sínum í tvær klukkustundir í Víðidal á Möðrudalsöræfum eftir útafakstur, segir með ólíkindum að enginn þriggja vegfarenda, sem hún bað um að hringja fyrir sig í Neyðarlínu þegar þeir kæmu í farsímasamband, lét vita af óhappinu.

Hrund Snorradóttir missti bíl sínn út af veginum í snjó og krapa á fimmtudagsmorgun. Bíllinn sat fastur í snjóskafli og Hrund gat ekki opnað neinar dyr.

Á rúmri klukkustund komu þrjár bifreiðir að og ökumenn buðu fram aðstoð. Hrönn bað fólkið að aka uns farsímasamband næðist og hringja þá í 112 og biðja um aðstoð. Fjórir til viðbótar óku fram á hana en þá þóttist hún örugg um að hjálp færi að berast og bað þá ekki sérstaklega að láta vita.

Tveimur klukkustundum eftir óhappið komu menn frá Vopnafirði aðvífandi, gátu opnað bifreiðina og tóku Hrund með sér. Annar mannanna er í slökkviliðinu á Vopnafirði en hann kannaðist ekki við útkall vegna óhapps á þessum slóðum. Í tíu mínútna fjarlægð frá slysstaðnum náðist farsímasamband og hringdi annar mannanna í Neyðarlínu, sem kannaðist ekki við að tilkynning hefði komið um óhappið og ekkert slíkt væri skráð í gagnasafn. Honum var gefið samband við skiptiborð lögreglu á landsvísu og þar var heldur ekkert skráð um tilkynningu vegna útafakstursins.

"Ég hef heyrt á fólki í kringum mig að það veigrar sér við að hafa samband nema kofinn sé hreinlega að brenna ofan af því eða fólki sé að blæða út. Að menn sjái þetta ekki sem hjálparlínu sem segir þér hvernig þú átt að bregðast við ef þú veist það ekki sjálfur. Kannski þarf að kynna þjónustuna betur," segir Hrönn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Úr safni.

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
CAVALIER HVOLPAR
Cavalier hvolpar til sölu. Erum með yndislega cavalier hvolpa til sölu. Kíktu á ...
Uppsetning Innréttinga.
Láttu fagmann vinna verkið. Reynsla í í Brúnás framleiðslu. Einnig endurbætur ...
Nýjar 17x7 álfelgur 4-114,3 til sölu.
Flottar felgur. Verð 60 þ. s. 896 3589 haddogg@simnet.is...
BÍLAR ÓSKAST Á SKRÁ
Bílalíf bílasala ... í bílum erum við sterkir! Skráðu bílinn þinn frítt hjá bila...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...