Vatni úr Hálslóni hleypt á aðrennslisgöngin

Vatni var hleypt á aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunnar.
Vatni var hleypt á aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunnar. mbl.is/Þórhallur Árnason

Merkur áfangi við gerð Kárahnjúkavirkjunar náðist í dag þegar vatni úr Hálslóni var hleypt á aðrennslisgöng virkjunarinnar. Það var um hádegisbil í dag sem Jóhann Kröyer, verkefnisstjóri Landsvirkjunar við gangagerðina, ræsti formlega búnaðinn sem lyftir aðallokunum í inntakinu við Hálslón og vatn byrjaði að streyma úr lóninu inn í aðrennslisgöngin.

Viðstaddir voru fulltrúar frá Landsvirkjun, framkvæmdaeftirlitinu (VIVJ), hönnuðunum (KEJV) og ítalska verktakafyrirtækinu Impregilo.

Til öryggis voru varalokurnar eigi að síður hafðar niðri til að byrja með en á þeim eru svokallaðir fyllingarstútar og því gat vatnið bunað óhindrað um þá inn í göngin.

Aðrennslisgöngin eru um 40 kílómetra löng og að sögn Sigurðar Arnalds, talsmanns Landsvirkjunar vegna Kárahnjúkavirkjunar, er reiknað með að fullur þrýstingur verði kominn á þau fyrir mánaðamót. Fljótlega upp úr því getur raforkuframleiðsla hafist. Austurhluti ganganna, frá Þrælahálsi að Valþjófsstaðafjalli, er reyndar þegar fullur af jarðvatni sem safnast hefur þar upp á undanförnum vikum.

Undanfarna daga hefur síðustu aðgöngunum inn í aðrennslisgöngin verið lokað, einum af öðrum, með 18 metra þykkum steinsteyptum „töppum“ og hefur lokaspretturinn gengið afar vel, og hraðar en menn höfðu þorað að vona, þó aðstæður hafi verið erfiðar sökum mikils vatnsaga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert