Starfshópur allra flokka stofnaður um málefni Orkuveitu Reykjavíkur
Margrét Sverrisdóttir, Dagur B. Eggertsson, Svandís Svavarsdóttir og Björn Ingi Hrafnsson er þau kynntu nýtt meirihlutasamstarf í borgarstjórn Reykjavíkur í síðustu viku. mbl.is/Golli
Yfirlýsing Svandísar fylgir hér á eftir í heild sinni.
Frá: Degi B. Eggertssyni, Svandísi Svavarsdóttur, Birni Inga Hrafnssyni og Margréti Sverrisdóttur.
Borgarráð samþykkir að stofnaður verði starfshópur undir stjórn Svandísar Svavarsdóttir með oddvitum þeirra lista sem sæti eiga í Borgarstjórn Reykjavíkur. Hópurinn hafi það hlutverk að kanna allar hliðar samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy með það að markmiði að hagsmunum almennings og borgar verði gætt, löglega verði að verki staðið og öllum spurningum svarað sem þegar hafa komið upp og upp kunna að koma við skoðun málsins, m.a. með tilliti til athugasemda og spurninga Umboðsmanns Alþingis.
Jafnframt vinni starfshópurinn og leggi fram stefnu Reykjavíkurborgar í orkumálum, sem taki m.a. til stefnumótunar OR til framtíðar með hagsmuni almennings og náttúru að leiðarljósi.
Drög að erindisbréfi hópsins liggur frammi sem greinargerð með tillögunni. Lagt er til að starfshópurinn hefji störf nú þegar og ráði sér starfsmann.
DRÖG
Erindisbréf stýrihóps um heildarstefnumótun og úttekt á málefnum Orkuveitu Reykjavíkur
Ábyrgð:
Borgarráð
Hlutverk:
Að kanna allar hliðar samruna Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy með það að markmiði að almannahagsmunum verði til haga haldið, löglega verði að verki staðið og öllum spurningum svarað sem þegar hafa komið upp og upp kunna að koma við skoðun málsins, m.a. með tilliti til athugasemda og spurninga Umboðsmanns Alþingis.
Jafnframt að leggja fram Orkustefnu borgarstjórnar Reykjavíkur sem taki m.a. til stefnumótunar OR til framtíðar með hagsmuni almennings og náttúru að leiðarljósi.
Helstu verkefni:
Kanna lagalegan grundvöll samruna REI og GGE.
Kanna með hvaða hætti hagsmunum almennings var gætt í aðdraganda samrunaferlisins.
Kanna aðkomu einstakra fjárfesta að REI m.a. með hliðsjón af jafnræðisreglu.
Gera tillögu að breytingum á samþykktum og eftir atvikum nýju skipuriti OR sem tengi stjórnsýslu í fyrirtækinu betur við eigendur sína, borgar- og sveitarstjórnir og íbúana.
Fá óháða sérfræðinga til að meta virði útrásarfyrirtækja Orkuveitunnar.
Taka við af hópi sem er að kanna hlutafélagavæðingu OR.
Kanna með hvaða hætti Reykvíkingar geta nýtt reynslu og þekkingu OR til verkefna þar sem nýta á jarðhita í stað jarðefnaeldsneytis, bæði sem lið í þróunarsamvinnu og baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Gera drög að Orkustefnu Reykjavíkurborgar sem tryggi gagnsæi í öllum ákvörðunum, sjálfbæra nýtingu orkulinda í sátt við umhverfið og íbúa, örugga afhendingu raforku, neysluvatns, upplýsinga og/eða gagnaveitu og hitaveitu við lægsta mögulega verð og góða þjónustu í hvívetna.
Fulltrúar í stýrihópi:
Einn fulltrúi frá hverjum lista sem á kjörinn fulltrúa í borgarstjórn auk borgarstjóra. Jafnframt verði kallað eftir sjónarmiðum fulltrúa annarra eigenda Orkuveitu Reykjavíkur, þ.e. Akraness og Borgarbyggðar. Þá verði einnig haft samráð við sveitarfélög á starfssvæði Hitaveitu Suðurnesja, þar sem OR og dótturfélög eiga umtalsverðan hlut í því fyrirtæki. Sigrún Elsa Smáradóttir verðandi stjórnarformaður starfi með hópnum.
Með hópnum starfi innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar, lögfræðilegur ráðgjafi, jarðhitafræðingur utan OR, sérfræðingur í fjárfestingum og fyrirhuguðum verkefnum REI, t.d. frá Jarðhitaskóla SÞ. Auk þess verði sérfræðingar verði kallaðir til verkefnisins eftir því sem þurfa þykir.
Skil verða í áföngum sem stýrihópur tímasetur. Lokaskil verði eigi síðar en á aðalfundi 1. júní 2008.
|
|
Þjónustusamningurinn í heild á ensku |
|
|
Þjónustusamningurinn í heild á íslensku |






































