Björn Ingi ekki í stýrihópnum

Björn Ingi Hrafnsson
Björn Ingi Hrafnsson Brynjar Gauti

Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, tekur ekki sæti í stýrihóp um málefni REI sem Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi VG, mun stýra. Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi framsóknarmanna mun taka sæti í hópnum í stað Björns Inga. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna mun heldur ekki taka sæti í hópnum heldur Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að það hafi alfarið verið ákvörðun Björns Inga að taka ekki þátt í hópnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert