Piltar staðnir að hnupli

Í Kringlunni voru Tveir 13 ára piltar voru staðnir að hnupli í Kringlunni í gær og í Smáralind fengu fimm unglingar, 13-14 ára, sér veitingar á matsölustað en yfirgáfu staðinn án þess að borga reikninginn. Til þeirra náðist og var forráðamönnum þeirra gerð grein fyrir málinu.

Í nótt var karlmaður á fertugsaldri handtekinn við fyrirtæki í miðborginni. Þar höfðu verið brotnar tvær rúður og töluvert rótað í hirslum innandyra. Maðurinn var blóðugur á báðum höndum þegar að var komið en hann þjáðist af minnisleysi þegar hann var beðinn um skýra veru sína á þessum stað í nótt.

Nokkru af fatnaði var stolið úr þvottahúsi fjölbýlishúss í miðborginni í gær en á meðal þess sem saknað var eru gallabuxur og peysur. Í Laugardal hurfu símar og myndavélar úr öðru húsi og í Norðlingaholti var óprúttinn aðili á ferð og tók eldsneyti á bensínstöð og fór á brott án þess að greiða fyrir það.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert