Unglingaslagsmálin endursýnd á Netinu
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is
„[...] áttir ekki að hætta, það er svo gaman að berja menn liggjandi," eru viðbrögð eins notanda youtube. Þótt annað mætti ætla af ofangreindum ummælum sló annar drengurinn hinn átta sinnum í andlitið á meðan hann lá í götunni. Atburðurinn átti sér stað við Glerártorg á miðvikudaginn og kom lögreglan á vettvang. Hún kom einnig að Giljaskóla á fimmtudagskvöldið þar sem aðrir tveir 15 ára drengir voru að slást. Í bæði skiptin var fjöldi áhorfenda á staðnum sem hvatti slagsmálahundana áfram.
Slást um léttvæg mál
Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Akureyri, segir að rætt hafi verið við foreldra allra drengjanna sem hlut áttu að máli. „Við viljum taka þetta föstum tökum þannig að það verði ekki framhald af þessu." Hann segir merkilegt að svo virðist sem unglingum finnist eðlilegt að gera upp um afar léttvæg mál sín á milli með því að skipuleggja slagsmál sem fjöldi fólks horfi á sér til skemmtunar.Með tilkomu myndsíma færist í vöxt að slagsmálin séu tekin upp og sett á Netið og á youtube.com eru nokkur myndbönd af slagsmálum íslenskra unglinga. Þar halda áhorfendur áfram að hvetja til slagsmála. „Þessi börn virðast ekki gera sér nokkra grein fyrir afleiðingunum. Það skapast náttúrlega mikil hætta þegar menn eru farnir að berja hver annan síendurtekið, af öllum lífs og sálar kröftum, í andlitið með krepptum hnefa," segir Gunnar. „Þetta er ofsafengið og gróft ofbeldi og grófara en við erum vanir að sjá hjá 15 ára unglingum."
Í hnotskurn
» Einn myndbandsáhorfandinn segir að sá sem hafði yfirhöndina hefði átt að „ganga alla leið" og hvetur því næst til hópslagsmála.Innlent »
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 23. október 2006, Innlent Fjórar líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur
- Laugardagur, 4. ágúst 2007, Innlent Allt annar bragur á tjaldstæðum Akureyrarbæjar
- Miðvikudagur, 1. nóvember 2006, Innlent Ótraustar festingar brustu á hringtorginu
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































