Borgin hækkar launaviðmiðanir

Í fréttatilkynningu á vefsíðu Vinnumálastofnunar segir að gert sé ráð fyrir að hver stofnun/fyrirtæki setji fram símenntunaráætlun fyrir alla starfsmenn í starfsáætlun sinni í starfsmannamálum til að tryggja eðlilega starfsþróun og símenntun starfsmanna í samræmi við starfsmannastefnu Reykjavíkurborgar.

Starfsmaður, sem tekur virkan þátt í símenntunaráætlun, á rétt á hærri launum en ella. Forsenda launaflokkahækkunar þessarar er staðfest þátttaka starfsmanns í símenntunaráætlun stofnunar/fyrirtækis. Þessi laun geta breyst.

Launaflokkar samkvæmt ofangreindu geta verið alls sex skv. eftirfarandi:

* Eftir 1 ár í starfi hjá Reykjavíkurborg Röðun einum launaflokki ofar en ella.

* Eftir 3 ár í starfi hjá Reykjavíkurborg Röðun einum launaflokki ofar en ella.

* Eftir 5 ár í starfi hjá Reykjavíkurborg Röðun einum launaflokki ofar en ella.

* Eftir 7 ár í starfi hjá Reykjavíkurborg Röðun einum launaflokki ofar en ella.

* Eftir 9 ár í starfi hjá Reykjavíkurborg Röðun einum launaflokki ofar en ella.

* Eftir 12 ár í starfi hjá Reykjavíkurborg Röðun einum launaflokki ofar en ella.

Ennfremur segi í fréttatilkynningunni að einnig skuli meta starfstíma starfsmanns sem starfað hefur í sambærilegu starfi á föstu mánaðarkaupi hjá öðru sveitarfélagi eða ríki enda liggi staðfesting fyrri vinnuveitanda fyrir.

"Hafi starfsmaður fengið launaflokk/a vegna virkrar þátttöku í símenntunaráætlun stofnunar en sinnir ekki lengur þeirri skyldu án lögmætra forfalla missir hann þann/þá launaflokk/a er hann hefur fengið. Áður en til þess getur komið ber yfirmanni að greina starfsmanni frá að hann muni missa þennan rétt ef hann bæti ekki virkni sína skv. símenntunaráætlun og ber að útskýra fyrir starfsmanni hvernig hann getur bætt sig. Starfsmaður getur óskað eftir að trúnaðarmaður sé viðstaddur slíkt samtal," segir ennfremur í fréttatilkynningunni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert