OR fellur frá samþykkt um samruna REI og GGE

Stjórnarfundur Orkuveitu Reykjavíkur í dag.

Stjórnarfundur Orkuveitu Reykjavíkur í dag. mbl.is/Golli

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti samhljóða á fundi í dag að fallast á tilmæli borgarráðs Reykjavíkur um að hafna samruna Reykjavik Energy Invest (REI) og Geysis Green Energy (GGE). Þá samþykkti stjórnin að falla frá samþykki sínu, sem veitt var á stjórnar- og eigendafundi um einkaréttarsamning við REI og samruna REI við Geysi Green.

Var Bryndísi Hlöðversdóttur, stjórnarformanni OR, falið að ræða um stöðu og framhald málsins við aðra hluthafa í REI og aðra þá aðila er málið varðar. Er þar m.a. vísað til bréfs Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns FL Group og GGE frá því í gær.

Í ályktun stjórnarinnar í dag segir að leitað verði viðeigandi leiða til að tryggja að tillaga borgarráðs nái fram að ganga.

Þá segir, að stjórn Orkuveitunnar samþykki, að fengnum tilmælum borgarráðs, að falla frá samþykki sínu sem veitt var 3. október á stjórnar- og eigendafundi OR að því er eftirfarandi atriði varði:

    a) að OR kaupi nýtt hlutafé í REI að fjárhæð kr. 2.600.000.000, á genginu 1,0 sem staðgreiðist fyrir 1. febrúar 2008.
    b) að Orkuveita Reykjavíkur samþykki að hlutir félagsins í Hitaveitu Suðurnesja hf., að bókfærðu verði kr. 8.674.611.-, verði lagðir inn sem hlutafé í REI á genginu 2,7 og fái hlutafé í REI að nafnvirði kr. 3.209.276 sem undanfari samruna REI og Geysis Green Energy.
    c) að Orkuveita Reykjavíkur samþykki samning við REI um aðgang að tækniþjónustu o.fl., dags. 3. okt. sl.
    d) að Orkuveita Reykjavíkur samþykki samruna REI við Geysi Green Energy hf. skv. fyrirliggjandi samningi um breytingar á eignarhaldi REI og samruna REI við Geysi Green Energy.

Áskilur stjórn OR sér rétt til að taka nýjar ákvarðanir varðandi ofangreind málefni, í samræmi við síðari ákvarðanir stjórnarinnar og væntanlegs eigendafundar OR, að fengnum tillögum stjórnarformanns OR.

Stjórn OR samþykkti einnig að beina því til stjórnarmanna í REI að ekki verði teknar neinar ákvarðanir í stjórn félagsins á grundvelli fundarsamþykktar frá 3. október sl., nema að fengnu fyrirfram samþykki stjórnar OR, en boðaður framhaldsaðalfundur REI verður haldinn 17 nóvember n.k.

Þá fól stjórn OR stjórnarformanni að vinna tillögur til stjórnar OR um aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að ná þeim markmiðum sem að sé stefnt. Skuli þær tillögur lagðar fyrir næsta stjórnarfund OR. Stefnt er að því, áður en ákvarðanir eru teknar um einstakar aðgerðir, að bera slíkar tillögur undir aukafund eigenda í OR. Jafnframt er stjórnarformanni falið að hafa samráð við fulltrúa eigenda um það hvenær af slíkum fundi geti orðið.

Loks samþykkti stjórn OR að fyrirtækið kaupi nýtt hlutafé í REI að fjárhæð 2,6 milljarða króna á genginu 1. Er þetta gert til að tryggja hagsmuni OR gagnvart öðrum hluthöfum í REI.

PDF-skrá Bókun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Úr safni.

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ
11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sófasett (2+1)
Lítið notað og vel með farið sófasett 2 +1. Stærð sófa 170cm. Verð 35.000 S. 863...
Kaupi mynt og seðlasöfn
Kaupi gömul mynt- og seðlasöfn. Met og geri tilboð á staðnum. Áralöng reynsla. K...
Aliner Expedition Nýskr 3/2008 Hlaðið aukabúnaði
Sólarsella Loftpúðafjöðrun, Nýtt fortjald, grjótgrind, 2 gaskútar, 2 rafgeymar. ...
Palomio Yearling 10 feta fellihýsi
Palomio Yearling 100 fellihýsi Árgerð 2007 10 feta Fortjald, svefntjöld, sóla...
 
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Aðalfundur alliance
Tilkynningar
Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...