Vinnuslys í Þorlákshöfn

Vinnuslys varð í grunnskólanum í Þorlákshöfn í dag. Að sögn lögreglu missti trésmiður, sem var þar að störfum, litla fingur hægri handar er hann var að nota borðsög. Maðurinn leitaði til læknis á heilsugæslustöðinni í Þorlákshöfn og hafði læknirinn þar samband við sjúkrabíl sem flutti smiðinn á slysadeild í Reykjavík. Að sögn lögreglu fannst fingur mannsins skammt frá borðsöginni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert