Meirihluti ökumanna ók of hratt um Víkurveg

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Brot 128 ökumanna voru mynduð á Víkurvegi í Grafarvogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Víkurveg í norðurátt að Hallsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 232 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tuttugu og tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var mældur á 101 km hraða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert