BMW í grjótinu

mbl.is/Hafþór

Þeir sluppu með skrekkinn ungu mennirnir tveir sem voru í bifreið sem lenti út í grjótgarði við Húsavíkurhöfn nú síðdegis. Óhappið varð á veginum á milli hafnarsvæðanna og missti ökumaður bílsins stjórn á honum með þessum afleiðingum.

Sem betur stöðvaðist bifreiðin í grjótinu því nokkrir metrar eru niður í fjöruna fyrir neðan og þá hefði farið verr. Kranabíl þurfti til að lyfta bílnum af grjótinu en hann virtist lítið skemmdur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert