Snákur finnst við húsleit á Egilsstöðum

Við húsleit lögreglunnar í íbúð á Egilsstöðum um helgina fannst m.a. svokallaður Cornsnákur. Snákurinn, sem var í glerbúri í opnu rými í íbúðinni, var haldlagður og færður í trygga geymslu á varðstofu lögreglunnar. Var snákurinn síðan aflífaður og mun fulltrúi heilbrigðiseftirlits annast eyðingu á hræinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert