Stal leigubíl og sýpur nú af því seyðið

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 18 ára pilt í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stela leigubíl í Mjódd í apríl á þessu ári og aka honum um götur borgarinnar. Bíllinn fannst tveimur dögum síðar í Vatnsendahvarfi eftir ábendingu piltsins.

Pilturinn rauf með þessu sex mánaða skil­orðsbundinn dóm, sem hann hlaut á síðasta ári fyrir fíkniefnabrot á síðasta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert