Allt að 100 ný störf verða til
Einingaverksmiðjan ehf. fær úthlutaða um 10 hektara lóð í Þorlákshöfn og þar verður byggð verksmiðja fyrir starfsemina. Samningur milli Sveitarfélagsins Ölfuss og Einingaverksmiðjunnar felur þetta í sér en hann var undirritaður í gær.
Einingaverksmiðjan ehf. er til húsa að Breiðhöfða 10 í Reykjavík og er leiðandi í framleiðslu forsteyptra eininga. Starfsemi fyrirtækisins hefur vaxið mjög hratt undanfarin ár og er smæð núverandi athafnasvæðis farin að há starfseminni. Þegar Einingaverksmiðjan ehf. verður kominn í fulla starfsemi munu um 70 til 100 manns starfa þar.
Áætlanir gera ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í janúar 2008 og áætluð verklok eru í lok sama árs.Ennfremur felur samningurinn í sér að Einingaverksmiðjan fær úthlutaðar allt að 40 lóðum undir einbýlishús, raðhús og parhús sem fyrirtækið mun reisa á næstu fjórum árum. Auk þess fær fyrirtækið vilyrði fyrir 20 lóðum til viðbótar undir íbúðarhús sem það hefur eitt ár til að taka endanlega ákvörðun um byggingu á.
Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri sagði að fyrirhuguð verksmiðja kæmi til með að rísa stutt norðan við byggðina og nálægðin við höfnina væri vissulega kostur því hluti framleiðslunnar færi til útflutnings. „Ég óttast ekkert að það komi niður á öðrum, hvorki einstaklingum né verktökum þó Einingaverksmiðjan fái þessar lóðir, við eigum nægt landsvæði og ef það kemur til með að vanta lóðir er fljótgert að ganga frá þeim, við látum ekki standa upp á okkur með að það vanti lóðir. Það er gaman að segja frá því að þegar er verksmiðjan með verkefni hér, þeir steypa allar einingar í vatnsverksmiðjuna að Hlíðarenda,“ sagði Ólafur Áki.
Sigurbjörn Óli Ágústsson, framkvæmdastjóri Einingaverksmiðjunnar, sagði að það væri aðallega skortur á landrými sem gerði það að verkum að verksmiðjan væri flutt um set. „Í Þorlákshöfn fáum við yfirdrifið landrými og okkur hefur verið einstaklega vel tekið af heimamönnum. Starfsemin hefur vaxið hratt á síðustu árum og nú starfa nú hjá okkur um 100 manns. Útflutningur á vissum vörum er allt að 25% af framleiðslunni þannig að nálægðin við höfnina er kostur. Þótt við fáum í þessum samningum úthlutað lóðum erum við ekki að fara út í húsbyggingar almennt heldur er þetta hugsað fyrir starfsfólk fyrirtækisins. Verksmiðjan í Þorlákshöfn verður vonandi tilbúin í lok næsta árs en starfsemin á Breiðhöfðanum mun ekki stöðvast fyrr en hægt verður að hefja starfsemi í Þorlákshöfn. Ekki verður notast við gömlu tækin, allt verður nýtt og fullkomnara og miðað við að auka starfsemina,“ sagði Sigurbjörn. Í hnotskurn» Einingaverksmiðjan sérhæfir sig í framleiðslu forsteyptra eininga til byggingaframkvæmda. » Einingaverksmiðjan framleiðir meðal annars veggi, burðarbita, plötur og sérsmíði á borð við svalir, brýr, sökkla, rekstaura, súlur og stúkur t.d. við íþróttaleikvanga. Einingaverksmiðjan veitir einnig alla þjónustu varðandi flutninga og uppsetningu eininga, fyrir jafnt stór sem smá verkefni.




































