Lostalengjur úr ærkjöti frá Ströndum

Hafa má lostalengjurnar ofan á brauð.
Hafa má lostalengjurnar ofan á brauð. mynd/bb.is

Á bænum Húsavík við Steingrímsfjörð hafa hjónin Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson hafið kynningarframleiðslu á svokölluðum Lostalengjum, sem eru unnar úr aðalbláberjalegnum og taðreyktum ærvöðvum. Hugmyndina höfðu þau gengið með í maganum í nokkur ár en í framhaldi af þátttöku í verkefninu Vaxtarsprotum sem hófst í febrúar hafa þau útbúið viðskiptaáætlun og stefna á fulla framleiðslu næsta haust.

 „Viðbrögðin voru ótrúleg. Við héldum smá kynningu á þessu á uppskeruhátíð Vaxtarsprota þar sem allir kynntu verkefnin sín og fengum smá fjölmiðlaumfjöllun í kjölfarið og við höfum varla undan að taka við pöntunum frá veitingahúsum og öðrum sem vilja bjóða upp á þessa lúxusvöru,“ segir Hafdís sem nýlega var ráðin til starfa á gróðurdeild Náttúrustofu Vestfjarða og hafði hugsað sér að nota tímann í haust til að koma sér fyrir í nýju starfi og klára mastersritgerð þegar þessi aukabúgrein fór að stækka svo óvænt. 

Hafdís og Matthías eru nú komin með lítinn kúnnahóp sem kaupir af þeim lostalengjurnar sem eru ekki ódýr matur, frekar en harðfiskur, enda rýrnunin mikil.

„Við reiknuðum verð í fjárhagsáætlun og það endaði í um 6500-7000 kr/kg, en á bak við það er aðalbláberjatínsla, heimareyking og fitusnyrting á sérvöldum vöðvum og við stefnum á að framleiða 300 kíló á ári úr völdum vöðvum af völdum ám. Hann Anton Helgason, heilbrigðisfulltrúi sagði við okkur að þegar búið er að leggja kjötið í aðalbláberjasaltpækil og reykja líka værum við eiginlega komin með axlabönd og belti, svo við höfum ekki áhyggjur af leyfismálunum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert