Vélarvana bátur sóttur

Vaktstöð siglinga fékk í morgun boð frá Jóni á Hofi ÁR-62, sem var vélarvana um 25 sjómílur norðvestur af Garðskaga. Jón á Hofi er 35 metra, 334 brúttólesta dragnótarbátur með 11 manns í áhöfn. Varðskip fór á staðinn og kom taug í skipið um klukkan 11:15. Varðskipið er með Jón á Hofi í togi, ferðin sækist vel og eru skipin væntanleg til Reykjavíkur síðdegis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert