Bílveltur og árekstrar í umdæmi lögreglunnar á Selfossi

Þrjár bílveltur urðu á hálftíma á Biskupstungnabraut á sjötta tímanum í dag, tvö atvikanna áttu sér stað á gatnamótum Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar. Engin slys hafa þó orðið á fólki en mikil hálka er í umdæmi lögreglunnar á Selfossi, á Hellisheiði, Suðurandsvegi og í innsveitum. Þá varð árekstur um sexleytið í Draugahlíðarbrekku skammt ofan við litlu kaffistofuna. Þar slasaðist enginn en bílarnir skemmdust mikið.

Verið er að salta Suðurlands veg, en lögregla biður ökumenn um að fara gætilega.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert