2000 golfkúlum stolið úr sjálfsala

Ráðist var á golfkúlusjálfsala við Svarfhólfsvöll í Laugardælum við Selfoss í síðustu viku og stolið úr honum 2000 golfkúlum og átta boltakörfum. Hefur lögreglan á Selfossi ekki upplýst hverjir voru að verki.

Eigandi Mercedes Bens vörubíls af eldri gerðinni uppgötvaði á föstudag, að farið hefði verið inn í bifreiðina og stolið úr henni tjakk, sjónauka og ökuritaskífum. Bifreiðin er lítið í notkun og hafi staðið óhreyfð frá því 10. nóvember síðastliðinn en hún var við íbúðarhús í Árbæjarhverfi norðan við Ölfusá.

Um síðustu helgi voru tvær rúður brotnar í grunnskólanum í Hveragerði en ekki liggur fyrir hverjir voru þar að verki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert