Bíll fauk út af undir Hafnarfjalli

Bifreið fauk út af veginum undir Hafnarfjalli kl. 19:42 í kvöld. Ökumaður var einn í bifreiðinni og slasaðist hann minniháttar. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi til skoðunar.

Mjög hvasst er á svæðinu og hefur óveðrið mælst vera um 35 metrar á sekúndum í hviðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert