Fauk útaf á Hellisheiði

Bílstjóra sendibifreiðar sakaði ekki er bíllinn fór útaf á Hellisheiði, ofan við Kambana, og valt eina veltu um hálf þrjúleytið í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Mikill krapi var á veginum og hvasst, og mun bílstjórinn, sem var einn á ferð, hafa misst stjórn á bílnum í vindhviðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert