Landsvirkjun gefur úr 4,5 milljarða skuldabréf
Landsvirkjun hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 75 milljónir dala, jafnvirði 4,5 milljarða króna, undir svonefndum EMTN rammasamningi fyrirtækisins. Segir fyrirtækið að um sé að ræða mjög hagstæð kjör þrátt fyrir óhagstæð ytri skilyrði á mörkuðum.
Lánstíminn er 7 ár og eru kjör skuldabréfsins Libor + 0,07%. Umsjónaraðilar útgáfunnar er belgíski bankinn DEXIA. Með þessari útgáfu er fjármögnun ársins 2007 lokið.
Landsvirkjun segir, að aðstæður á lánamörkuðum hafi verið Landsvirkjun hagstæðar á fyrri hluta ársins sem skilaði sér í hagstæðum lánum bæði hvað varðar kjör og lánstíma. Fyrirtækið náði að ljúka stærstum hluta lánsfjárþarfar sinnar vegna ársins í maí sl. Munaði þar mestu um mikið framboð fjármagns á mörkuðum og góða lánshæfiseinkunn fyrirtækisins.
Frá því í ágúst, þegar áhrifa af bandarísku húsnæðislánakrísunni fór að gæta, hafi aðstæður á lánamörkuðum verið óhagstæðar. Fjármálafyrirtæki hafa þurft að afskrifa töluverðar fjárhæðir og erfiðleikar í bandaríska hagkerfinu hafa teygt anga sína yfir á aðra markaði. Í kjölfarið hefur mikil áhættufælni ríkt á mörkuðum og margir hafa haldið að sér höndum. Til að gera ástandið enn erfiðara á lánamörkuðum fyrir íslensk fyrirtæki tilkynnti erlenda lánshæfisfyrirtækið Standard & Poor´s í sl. viku að horfur íslenska ríkisins hefðu verið færðar úr stöðugum niður í neikvæðar.
Landsvirkjun segir, að breytingar sem þessar hafi bein áhrif á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar til hins verra. Þrátt fyrir þessi óhagstæðu ytri skilyrði hafi Landsvirkjun tekist að gefa út skuldabréf á mjög hagstæðum kjörum á sama tíma og tryggingarálag á íslenska ríkið var um Libor + 0,4%.
Fyrir utan hefðbundna fjármögnun hefur Landsvirkjun aðgang að veltiláni að upphæð 400 milljónir dala, sem tekið var í árslok 2005 og er ætlað að styðja enn frekar við lausafjárstöðu fyrirtækisins. Heildarfjárþörf fyrirtækisins fyrir árið 2008 er um 600 milljónir dala og segir í tilkynningunni, að Landsvirkjun fari því inn í næsta ár fjárhagslega sterkt og með töluvert lausafé til ráðstöfunar.
Innlent »
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 17. desember 2007, Innlent Í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnar
- Mánudagur, 17. desember 2007, Innlent Viðræðum við landeigendur við Þjórsá haldið áfram
- Þriðjudagur, 25. nóvember 2008, Innlent Orkuöflun í mikilli óvissu
- Föstudagur, 26. september 2008, Innlent 20 manns sagt upp hjá Vodafone
- Föstudagur, 20. júní 2008, Innlent 3,5 milljarðar í djúpborun
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































