Ók á barn og stakk af

Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld. Víkurfréttir/Þorgils

Alvarlegt umferðarslys varð á mótum Vesturgötu og Birkiteigs í Reykjanesbæ um kl. 17 í dag þar sem ekið var á barn. Barnið sem fjögurra ára gamalt slasaðist alvarlega og var flutt í forgangsakstri til Reykjavíkur, en ekki er vitað frekar um líðan þess í augnablikinu. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.

Þar segir að gerandi hafi flúið af vettvangi. Lögregla lýsir eftir bláum skutbíl sem sást yfirgefa vettvanginn. Þeir sem geta gefið frekari upplýsingar um atburðinn eða bíl sem svarar þessari lýsingu eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert