Ók á stöðumæli

Tvær konur voru teknar fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gærkvöldi og nótt. Önnur ók á stöðumæli í miðborginni um kvöldmatarleytið en þar lauk ökuferð hennar. Hin var stöðvuð á Bústaðavegi en hún átti mjög erfitt með að halda bíl sínum á veginum. Að sögn lögreglu er eldri konan  um fimmtugt en sú yngri er tæplega þrítug.

Þá voru karl og kona á þrítugsaldri tekin fyrir fíkniefnakstur. Þau voru bæði handtekin í Kópavogi síðdegis í gær.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert